Þeir Gustarar sem hyggjast skrá sig á Íslandsmót yngri flokka eru beðnir um að senda inn upplýsingar á netfangið
hermann@frostmark.is fyrir miðnætti í kvöld 29. júlí.
Fram þarf að koma nafn og kt. knapa, nafn og IS nr hross, aldursflokkur og keppnisgreinar. Upplýsingar um greiðslu skráningargjalda verða sendar til baka í tölvupósti.
Mótið fer fram á Hvammstanga dagana 12. - 15. ágúst og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts á slóðinni
http://thytur.123.is/