1. Vetrarleikar 15. Febrúar
Fyrstu vetrarleikar ársins fóru fram laugardaginn 15. febrúar sl. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið þátttakendur grátt, en beljandi rigning og hávaðarok, með tilheyrandi leðju og þungri færð á vellinum gerði öllum erfitt fyrir. Þrátt fyrir það létu Gustarar ekkert stöðva sig og keppt var í öllum flokkum. Þátttaka var langmest í kvennaflokki, enda Gustkonur þekktar fyrir dugnað og áræði, en minni þátttaka í öðrum flokkum og var hún svo lítil í unglinga- og ungmennaflokkum að ákveðið var að sameina þá. Að leikunum loknum komu keppendur svo saman í reiðhöllinni og tóku við verðlaunum um leið og þeir yljuðu sér á kaffi og vöfflum hjá Helgu kaffistýru.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Pollaflokkur:
1. Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Huginn frá Hörgshóli, 6v moldóttur.
2. Helena Ríkey Leifsdóttir, Skröggur frá Tjörn, 9v rauðskjóttur.
3. Valdís Björk Guðmundsdóttir, Litli-Rauður frá Svignaskarði, 12v rauður.
4. Auður Ása Waagfjörð, Rauður frá Huga, 8v rauður.
Barnaflokkur:
1. Berta María Waagfjörð, Gorbi frá Huga, 10v móálóttur.
2. Bára Bryndís Kristjánsdóttir, Laski frá Kirkjubæ, 12v rauðbles.
3. Sigrún Ýr Sigurðardóttir, Fluga frá Kópavogi, 5v brún.
4. Guðný Birna Guðmundsdóttir, Fjöður frá Svignaskarði, 17v jarpvind.
5. Guðlaug Rut Þórsdóttir, Krossfari frá Syðra-Skörðugili, rauðbles.
Unglingar/Ungmenni:
1. Tryggvi Þór Tryggvason, Skrekkur frá Sandfelli, 11v jarpur.
2. Hólmfríður Kristjánsdóttir, Amor frá Hellu, Árskógsstr., 7v móálóttur.
3. Reynir Ari Þórsson, Baldur frá Miðey, 10v jarpur.
4. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Elja frá Reykjavík, 9v brún.
Kvennaflokkur:
1. Berglind Rósa Guðmundsdóttir, Þjótandi frá Svignaskarði, 7v jarpstjörn.
2. Hulda G. Geirsdóttir, Felix frá Stóra-Sandfelli, 12v brúnskjóttur.
3. Oddný M. Jónsdóttir, Sjöstjarna frá Svignaskarði, 12v brúnstjörn.
4. Maríanna S. Bjarnleifsdóttir, Sókrates frá Tungu, 8v brúntvístjörn.
5. Anna Guðmundsdóttir, Mánadís frá Neðra-Seli, 9v brúnstjörn.
Heldri menn og konur:
1. Viktor Ágústsson, Kyndill frá Bjarnarnesi, 8v jarpur.
2. Þór Vigfússon, Vordís frá Reykjavík, 10v rauð.
3. Kristján Már Hjartarson, Hringhenda, brúnblesótt.
Karlaflokkur:
1. Bjarni Sigurðssson, Ægir frá Skollagróf, 9v grár.
2. Hilmir Snær Guðnason, Urður frá Arnarstöðum, 10v grá.
3. Sigurður Leifsson, Sörli frá Kálfhóli, 11v rauðblesóttur.
4. Ívar Harðarson, Logi, 13v rauður.
5. Hreiðar Hreiðarsson, Jagúar frá Huga, 8v jarpur.
2. Vetarleikar 15.Mars
Aðrir vetrarleikar ársins hjá Gusturum í Kópavogi fóru fram laugardaginn 15. mars sl. og tókust vel. Keppt var í öllum flokkum og var þátttaka góð, nema í unglinga- og ungmennaflokkum sem voru sameinaðir. Mörg góð hross komu fram, jafnt þrautreyndir jaxlar sem og athyglisverðir nýliðar og var keppnin jöfn og spennandi. Það er óhætt að segja að hestamennska og keppni séu fjölskylduíþrótt í Gusti því svo skemmtilega vildi til að formaður félagsins, Þóra Ásgeirsdóttir, sigraði í sínum flokki á gæðingnum Vaski frá Vallanesi og maður hennar, Þorvaldur Gíslason, varð fjórði í karlaflokki. Bjarni Sigurðsson sigraði í karlaflokki, en kona hans, Helga, varð fjórða í kvennaflokki og það var líka gaman að sjá þær systur, Rúnu og Elku Halldórsdætur sem sigruðu í sínum flokkum og afi þeirra Svanur Halldórsson sigraði í heldri manna flokki. Mæðgurnar Oddný og Guðný Birna náðu svo í silfur í barna- og kvennaflokkunum.
Mótið var skemmtilegt þrátt fyrir að völlurinn væri svolítið þungur, hestakosturinn góður og stemmingin fín. Dómari var Guðmar Þór Pétursson.
Pollaflokkur:
1. Rúna Halldórsdóttir og Barón frá Kópavogi 9v rauðblesótt.
2. Helena Ríkey Leifsdóttir og Skröggur frá Tjörn 9v rauðskjóttur.
3. Karen Ívarsdóttir og Logi úr Landeyjum 13v rauður.
4. Sigrún Gyða Sveinsdóttir og Huginn frá Hörgshóli 6v moldóttur.
5. Freyja Rut Magnúsdóttir og Flís frá Feti 5v brún.
6.-7. Valdís Björk Guðmundsd. og Litli-Rauður frá Svignaskarði 14v rauður.
6.-7. Auður Ása Waagfjörð og Gæsla frá Huga 6v rauðblesótt.
Barnaflokkur:
1. Sigrún Ýr Sigurðardóttir og Sörli frá Kálfholti 12v rauðblesóttur.
2. Guðný Birna Guðmundsdóttir og Fjöður frá Svignaskarði 17v jarpvindótt.
3. Berta María Waagfjörð og Gorbi frá Huga 6v mósóttur.
4. Guðlaug Rut Þórsdóttir og Snjóalda frá Múlakoti 7v leirljós, bles.
5. Sólveig Ósk Guðmundsdóttir og Griffill frá Ölvaldsstöðum 6v rauðstjörn.
Unglingar/ungmenni:
1. Elka Halldórsdóttir og Sproti frá Kópavogi 9v rauður.
2. Tryggvi Þór Tryggvason og Skrekkur frá Sandfellur 11v jarpur.
3. Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson og Vængur frá Köldukinn 9v brúnskjóttur.
4. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Amor frá Hellu, Árskógsstr. 7v móálóttur.
5. Jana Rós Reynisdóttir og Hrönn frá Tóftum 11v brún.
Kvennaflokkur:
1. Þóra Ásgeirsdóttir og Vaskur frá Vallanesi 11v brúnn.
2. Oddný M. Jónsdóttir og Sjöstjarna frá Svignaskarði 12v brúnstjörnótt.
3. Ragnhildur Benediktsdóttir og Röst frá Krossanesi 10v rauðblesótt.
4. Helga R. Júlíusdóttir og Hrannar frá Skeiðháholti 12v jarpur.
5. Hulda G. Geirsdóttir og Dimma frá Skagaströnd 13v brún.
Heldri menn og konur:
1. Svanur Halldórsson og Gúndi frá Kópavogi 10v móálóttur.
2. Sæmundur Guðmundsson og Punktur frá Ölvaldsstöðum 2.
3. Viktor Ágústsson og Kyndill frá Bjarnarnesi 8v jarpur.
4. Þór Vigfússon og Vordís frá Reykjavík 10v rauð.
5. Ármann Stefánsson og Goði frá Ytra-Hólmi 7v rauður.
Karlaflokkur:
1. Bjarni Sigurðsson og Eldur frá Hóli 12v rauðstjörnóttur.
2. Ríkharður Fl. Jensen og Jökull frá Litlu-Tungu 8v hvítur.
3. Magnús Matthíasson og Dynur frá Hafsteinsstöðum 7v rauðblesóttur.
4. Þorvaldur Gíslason og Faxi frá Súluholti 7v rauður.
5. Sigurjón Gylfason og Eldjárn frá Ingólfshvoli 6v rauður.
Opna Barkamótið í Tölti 29. Mars
Barkamótið fór fram í gærkvöldið og tókst frábærlega. Gustarar fjölmenntu í höllina, bæði til að taka þátt og til að horfa á. Rúmlega fimmtíu knapar voru skráðir til leiks, en keppt var í tveimur flokkum, 16 ára og yngri og 17 ára og eldri.
Leikar fóru þannig að í yngri flokki sigraði Viggó Sigurðsson úr Sörla á Fantasíu en á hæla honum komu svo þrír fulltrúar Gustara sem stóðu sig vel. Sérstaklega var gaman að sjá hina ungu Guðnýju Birnu standa sig svo vel í sinni fyrstu töltkeppni á Sjöstjörnu. Í eldri flokki var keppnin jöfn og spennandi og margir feikna góðir hestar skráðir til leiks. Eyjólfur Þorsteinsson vann sig upp í A- úrslitin eftir að Berglind Rósa Guðmundsdóttir hætti keppni en hún hafði verið í sjötta sæti að lokinni forkeppni.
Nokkrar sviptingar urðu svo í A-úrslitunum þar sem Hinrik Bragason reið sig upp úr fjórða sætinu í annað og Jón Ó. Guðmundsson fór upp um eitt sæti, úr fjórða í þriðja. Enn og aftur var það hins vegar ungur Suðurnesjamaður sem sigraði, í fyrra var það Jón Viðar Viðarsson sem sló í gegn með Védísi frá Síðu, en nú varð sigurvegarinn Sveinbjörn Bragason á glæsihryssunni Surtsey frá Feti. Þau voru efst eftir forkeppni og héldu sínu örugglega í úrslitunum og fögnuðu sigri. Þar með tryggðu þau sér þátttökurétt í Ístöltinu um næstu helgi ásamt veglegum verðlaunum í boði Barka ehf.
Mótið tókst einstaklega vel og er rétt að þakka íþróttanefndarfólki fyrir vel unnin störf sem og Kristni Valdemarssyni og Erlu Matthíasdóttur í Barka fyrir stuðning þeirra við mótið.
Úrslit:
16 ára og yngri:
1. Viggó Sigurðsson, Sörla, og Fantasía frá Miðfelli 6v jörp 6,20/6,23
2. Guðný B. Guðmundsd., Gusti, og Sjöstjarna frá Svignaskarði 11v brúnstjörn. 4,70/5,94
3. Bjarnleifur S. Bjarnleifss., Gusti, og Vængur frá Köldukinn 8v brúnskjóttur 5,57/5,87
4. Freyja Þorvaldardóttir, Gusti, og Fókus frá Feti 6v brúnskjóttur 4,73/5,50
5. Sunneva Lind Ólafsdóttir, Sörla, og Fröken Sara frá Hvítárvöllum 7v rauðblesótt 5,0/5,31
17 ára og eldri:
1. Sveinbjörn Bragason, Mána, og Surtsey frá Feti 7v brún 6,70/7,40
2. Hinrik Bragason, Fáki, og Höfgi frá Ártúnum, 6v dökkjarpur 6,50/7,28
3. Berglind Ragnarsdóttir, Fáki, og Ögri frá Laugarvöllum 9v jarpbles. 6,67/7,09
4. Jón Ó. Guðmundsson, Andvara, og Brúnka frá Varmadal 9v brún 6,47/6,99
5. Tómas Ö. Snorrason, Fáki, og Skörungur frá Bragholti 9v bleikbles. 6,63/6,94
6. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, og Súla frá Hafsteinsstöðum 7v grá 6,13/6,53/6,78 (sigraði í B-úrslitum).
7. Sigurður Halldórsson, Gusti, og Birtingur frá Selá, 7v brúnstjörn. 6,10/6,43
8. Haraldur Haraldsson, Sörla, og Víkingur frá Gegnishólum 9v sótrauður 6,13/6,23
9. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, og Eldvör frá Hákoti, 7v dreyrrauð 6,13/6,17
10. Berglind Rósa Guðmundsdóttir, Gusti, og Þjótandi frá Svignaskarði 7v jarptvístjörn. 6,40/lauk ekki keppni í úrslitum.
3. Vetarleikar 5. Apríl
Í gær fóru fram opnir vetrarleikar í vorblíðu í Glaðheimum og tókust þeir vel. Keppendur komu víða að, góð blanda heimamanna og gesta. Keppt var í öllum flokkum, auk 100 m skeiðs sem lífgaði upp á leikana og gaman var að sjá ungu strákana okkar úr Gusti taka þátt í skeiðinu og standa sig prýðisvel. Gustarar komu vel út á mótinu og hömpuðu sigri í flokkum barna, unglinga, ungmenna, heldri manna og karla, auk þess sem sigurvegarinn í kvennaflokki er gamall Gustari sem oft hefur riðið á vellinum í Glaðheimum með góðum árangri. En úrslit urðu eftirfarandi:
Pollar:
1. Steinunn Elva Jónsdóttir, Andvara, og Glampi 14v brúnskjóttur.
2. Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Gusti, og Huginn frá Hörgshóli 6v moldóttur.
3. Rúna Halldórsdóttir, Gusti, og Barón frá Kópavogi, 9v rauðblesóttur.
4. Helena Ríkey Leifsdóttir, Gusti, og Skröggur frá Tjörn 9v rauðskjóttur.
5. Valdís B.Guðmundsdóttir, Gusti, og Litli-Rauður frá Svignaskarði 14v rauður.
Börn:
1. Sigrún Ýr Sigurðardóttir, Gusti, og Sörli frá Kálfhóli 12v rauðblesóttur.
2. Guðný B. Guðmundsdóttir, Gusti, og Fjöður frá Svignaskarði 16v jarpvindótt.
3. Ólöf Þóra Jóhannsdóttir, Andvara, og Stjörnudís frá Kjarnholtum 9v jörp.
4. Bára B. Kristjánsdóttir, Gusti, og Laski frá Kirkjubæ 13v rauðblesóttur.
5. Berta María Hreiðarsdóttir, Gusti, og Bleikur 10v.
Unglingar:
1. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Gusti, og Vængur frá Köldukinn 8v brúnskjóttur.
2. Linda Rún Pétursdóttir, Herði, og Hvessingur frá Sperðli 8v rauðglófextur.
3. Hólmfríður Kristjánsdóttir, Gusti, og Amor frá Hellu, Árskógsstr. 7v móál.
4. Anna Gréta Oddsdóttir, Andvara, og Þruma frá Stokkhólma 6v grá.
5. Daníel Gunnarsson, Andvara, og Díana frá Heiði 7v jörp.
Ungmenni:
1. Tryggvi Þór Tryggvason, Gusti, og Skrekkur frá Sandfelli 12v jarpur.
2. Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Gusti, og Brynja frá Skógskoti 11v rauð.
3. Guðmundur M. Skúlason, Snæfellingi, og Hvati frá Saltvík jarpur.
4. Ólafur Andri Guðmundsson, Gusti, og Blökk frá Skógskoti 7v brún.
5. María Einarsdóttir, Gusti, og Venus frá Vindheimum 10v rauð.
Kvennaflokkur:
1. Erla Guðný Gylfadóttir, Andvara, og Smyrill frá Stokkhólma 8v grár.
2. Ásta Björk Benediktsdóttir, Herði, og Snót frá Akureyri 8v jörp.
3. Birgitta Dröfn Kristinsdóttir, Gusti, og Sif frá Höfða 5v brún.
4. Ragnhildur G. Benediktsdóttir, Gusti, og Röst frá Krossanesi 10v rauðblesótt.
5. Oddný M. Jónsdóttir, Gusti, og Sjöstjarna frá Svignaskarði 13v brúnstjörnótt.
Heldri menn og konur (+50 ára):
1. Magnús Matthíasson, Gusti, og Dynur frá Hafsteinsstöðum 7v rauðblesóttur.
2. Ásgeir Heiðar, Andvara, og Þorri frá Forsæti 7v móálóttur.
3. Victor Ágústsson, Gusti, og Kyndill frá Bjarnarnesi 8v jarpur.
4. Svanur Halldórsson, Gusti, og Gúndi frá Kópavogi 10v móálóttur.
5. Elvar Ólafsson og Gammur frá Múlakoti 9v jarpur.
Karlaflokkur:
1. Steingrímur Sigurðsson, Gusti, og Kveikur frá Miðsitju 17v brúnn.
2. Þorvaldur Gíslason, Gusti, og Fókus frá Feti 6v brúnskjóttur.
3. Bjarni Sigurðsson, Gusti, og Eldur frá Hóli 12v rauður.
4. Haraldur Gunnarsson, Gusti, og Geisli frá Akurgerði 10v rauðblesóttur.
5. Guðlaugur Pálsson, Herði, og Védís frá Lækjarbakka 8v rauðglófext.
100 m fljúgandi skeið:
1. Logi Guðmundsson og Dillon frá Núpi 13v brúnn 8,84 sek
2. Victor Ágústsson og Viðja frá Birtingarholti 13v brún 10,37 sek
3. Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson og Elja frá Reykjavík 9v brún 10,54 sek
4. Guðmundur H. Ólafsson og Blekking frá Hávarðarkoti 8v brún 10.60 sek
5. Hreiðar H. Hreiðarsson og Jaguar frá Huga 8v jarpur 11,15 sek
Opna ÁG Mótið í Tölti 24. Apríl
Opna ÁG mótið í tölti
Hið árlega opna ÁG mót í tölti fór fram á sumardaginn fyrsta, en þar er keppt í flokkum barna, unglinga og ungmenna. Þátttaka var nokkuð góð, mest í barnaflokki og tókst mótið vel. Margir nýttu tækifærið og gæddu sér á kræsingum á efri hæð reiðhallarinnar, en þar var kaffihlaðborð í boði kvennadeildarinnar. Leikar fóru þannig að nágrannafélögin skiptu sigrunum á milli sín, Gustur átti sigurvegara í barnaflokki, Sörli í unglingaflokki og Andvari í ungmennaflokki. Sex knapar riðu til úrslita í bæði barnaflokki og ungmennaflokki, en þar voru tveir jafnir í 5.-6. sæti að lokinni forkeppni. Gustarar gerðu það gott á mótinu og unnu til sex verðlauna, auk þess sem margir fleiri tóku þátt og stóðu sig vel. Heildarúrslit urðu eftirfarandi:
Barnaflokkur:
1. Sigrún Ýr Sigurðardóttir, Gusti, og Fluga frá Kópavogi 6v brún 5.57/5.81
2. Bára Bryndís Kristjánsd.,Gusti, og Dimma frá Skagaströnd 13v brún 5.43/5.52
3. Guðný B. Guðmundsd., Gusti, og Sjöstjarna frá Svignaskarði 12v brúnstjörn. 5.50/5.49
4.-5. Edda Rún Guðmundsd., Fáki, og Fiðla frá Höfðabrekku 10v rauðstjörn. 4.80/5.46
4.-5. Arna Ýr Guðnad., Fáki, og Dagfari frá Hvammi II, V-Hún. 11v móbrúnn 4.97/5.46
6. Skúli Þór Jóhannsson, Sörla, og Gyðja frá Hafnarfirði 12v rauðbles. 4.80/5.09
Unglingaflokkur:
1. Viggó Sigurðsson, Sörla, og Fantasía frá Miðfelli 7v jörp 5.70/5.95
2. Freyja Þorvaldardóttir, Gusti, og Prins frá Austurkoti 6v brúnskjóttur 5.47/5.79
3. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Gusti, og Vængur frá Köldukinn 8v brúnskj. 5.43/5.75
4. Sandra Líf Þórðardóttir, Sörla, og Hrókur frá Enni, Viðvíkursv., 7v brúnn 5.17/5.65
5. Heiða Rut Guðmundsdóttir, Mána, og Glampi frá Fjalli 10v rauður 5.23/5.64
Ungmennaflokkur:
1. Bylgja Gauksdóttir, Andvara, og Hnota frá Garðabæ 8v jörp 6.03/6.33
2. Elfa Björk Margeirsdóttir, Mána, og Stika frá Kirkjubæ 10v rauðbles. 6.17/6.28
3. Signý Ásta Guðmundsd., Fáki, og Framtíð frá Árnagerði 7v 5.80/6.12
4. Helga Björk Helgadóttir, Geysi, og Gola frá Grundarfirði 7v rauð 5.57/5.96
5. Tryggvi Þór Tryggvason, Gusti, og Skrekkur frá Sandfelli 12v jarpur 4.93/5.78
6. Auður Sólrún Ólafsdóttir, Mána, og Fjöður frá Heiðarbrún 7v bleikálótt 4.93/5.65
Kvennatölt 2003 30. Apríl
Kvennatöltið sem fram fór í gærkvöld tókst frábærlega og var hestakostur magnaður. Hörkukeppni var um efstu sætin og fóru bestu hrossin í háar tölur. Kvennatöltið hefur unnið sér sess sem eitt af skemmtilegustu mótum ársins og er nú stærsta opna töltmót landsins þar sem tæplega 100 konur tóku þátt í ár.
Gaman var að sjá dugnaðarkonur stíga sín fyrstu skref í keppni í 3. flokknum, en þar sigraði Guðrún Lóa Kristinsdóttir á Orradótturinni Írisi og sýndi hún og sannaði að keppnin er ekki bara fyrir unglingana. Í 2. flokki sigraði María Þórarinsdóttir úr Biskupstungunum, en hún mætti með enn eitt hestagullið úr eigin ræktun, hinn stórglæsilega Fjarka frá Fellskoti. Í 1. flokki var það svo Anna Björk Ólafsdóttir sem sigraði á Hörpu frá Gljúfri, en hún átti einstaklega góða sýningu, sýndi frábært hægt tölt og faglega og prúða reiðmennsku, alveg til fyrirmyndar. Þórunn Hannesdóttir, sem sigraði í 2. flokki í fyrra mætti nú í 1. flokkinn og uppskar silfurverðlaunin, en hún hlaut hæstu tölur mótsins fyrir greitt tölt þar sem dómarar veifuðu tölum upp í 8.5.
Á heildina litið var þetta frábært mót og Kvennatöltið er svo sannarlega komið til að vera, það sýna vinsældir þess. Mótið mun að sjálfsögðu halda áfram að þróast og markmiðið er enn sem fyrr að hvetja konur til þátttöku í keppni í hestaíþróttum.
Rétt er að þakka öllum þeim er störfuðu að mótinu, dómurum, Elísabetu Sæmundsdóttur fyrir frábær þularstörf, en hún keyrði mótið áfram af dugnaði, riturum, dyravörðum, Þorsteini tölvugúru og hans fólki og Magnúsi diskótekara sem sá um að halda fjörinu uppi. Ekki má gleyma Kvennadeildinni og öllum öðrum þeim sem með einum eða öðrum hætti hafa komið þessu móti.
Nú er ekkert að gera nema að fara að hlakka til Kvennatölts 2004!
Úrslit urðu eftirfarandi:
3. flokkur:
1. Guðrún Lóa Kristinsd., Fáki, og Íris frá Bergþórshvoli 7v brún. 5.87/6.41
2. Sólrún Sigurðard., Sleipni, og Kopar frá Selfossi 10v jarpur 5.67/6,34
3. Silvía Rut Gíslad., Andvara, og Krummi frá Breiðholti 8v brúnn 4.43/5.61/5.80 (sigraði í B-úrslitum)
4. Dagbjört Rós Helgad., Sörla, og Strengur frá Hrafnkelsst. 10v grár 5.47/5.63
5. Elísabet Sveinsdóttir, Andvara, og Prins frá Hafnarfirði 6v grár 5.43/5.49
6. Guðrún Pétursdóttir, Fáki, og Atlas frá Ártúnum 8v brúnskjóttur 4.53/5.48
7. Helga Rut Júlíusd., Gusti, og Hrannar frá Skeiðháholti 12v jarpur 4.33/5.33
8. Harpa Kristjánsd., Andvara, og Galdur frá Akureyri 9v brúnn 4.07/4.53
9. Erla Pétursdóttir, Andvara, og Stígandi frá Stóra-Hofi 7v rauðskj. 4.03/4.89
10. Þóra Ólafsdóttir, Fáki, og Stjarna frá Skyggni 12v brúnstjörn. 4.07/4.53
2. flokkur:
1. María Þórarinsd., Loga, og Fjarki frá Fellskoti leirjósnös. 5.90/6.73
2. Rósa Valdimarsd., Fáki, og Zorró frá Álfhólum, 7v svartur 5.77/6.51
3. Signý Ásta Guðmundsd., Fáki, og Framtíð frá Árnagerði 7v brún 5.73/6,37/6.46 (sigraði í B-úrslitum)
4. Anita Aradóttir, Fáki, og Sunna frá Reykjum 10v rauðskjótt 5.80/6.43
5. Jóhanna Þ. Magnúsd., Sleipni, og Goði frá Strönd 7v moldóttur 5.80/6.33
6. Sigrún Valdimarsd., Mána, og Tenór frá Rifshalakoti 9v svartur 5.77/6.18
7. Gréta Boða, Andvara, og Hnota frá Garðabæ 8v jörp 5.73/5.97
8.-9. Hulda G. Geirsd., Gusti, og Mjölnir frá Hofi í Öræfum 7v bleikál. 5.47/5.97
8.-9. Ásta B. Benediktsd., Herði, og Snót frá Akureyri 8v jörp 5.70/5.97
11. Auður Möller, Fáki, og Fiðla frá Höfðabrekku 10v rauðstjörn. 5.47/5.96
1. flokkur:
1. Anna Björk Ólafsdóttir, Sörla, og Harpa frá Gljúfri 12v rauð 6.63/7.45
2. Þórunn Hannesdóttir, Andvara, og Gjöf frá Hvoli 8v jörp 6.60/7.39
3. Lena Zielinski, Fáki, og Huld frá Auðsholtshjáleigu 6v bleikál. 6.47/7.21
4. Sara Ástþórsdóttir, Fáki, og Þyrnirós frá Álfhólum 7v brún 6.67/7.17
5. Hulda Gústafsd., Fáki, og Þengill frá Kjarri 8v rauðbles.glóf. 6.47/7.0
6. Edda Rún Ragnarsd., Fáki, og Gnótt frá Skollagróf 6.43/6.70/6.94 (sigraði í B-úrslitum)
7. Þórdís E. Gunnarsd., Fáki, og Skellur frá Hrafnkelsstöðum 8v rauður 6.23/6.67
8. Birgitta Magnúsd., Herði, og Óðinn frá Köldukinn 15v rauðstjörn. 6.30/6.42
9.-10. Hugrún Jóhannsd., Sleipni, og Drífa frá Þverárkoti 8v grá 6.17/6.38
9.-10. Erla Guðný Gylfad., Andvara, og Brúnka frá Varmadal 9v brún 6.23/6.38
Firmakeppni 2.Maí
Firmakeppni Gusts fór fram föstudagskvöldið, 2. maí, á Háumýrarvelli í Glaðheimum. Kvöldið hófst á hópreið í gegnum Lindahverfið og þaðan kirkjugarðshringinn og svo aftur inn í Glaðheima. Keppt var í öllum flokkum og var þátttaka mjög góð eða 110 skráningar alls, flestar í kvenna- og karlaflokki. Dómararnir, Þorvarður Friðbjörnsson og Ragnhildur Sigurðardóttir úr Herði, stóðu sig vel í erfiðu verkefni og að lokinni keppni var grillað og sungið í veitingastofunni og þeir alhörðustu skelltu sér svo á fjörugt hlöðuball með Pöpunum í reiðhöllinni á eftir. Sannarlega skemmtilegt kvöld í Glaðheimum og vel heppnuð nýbreytni.
Pollar:
1. Rúna Halldórsdóttir og Brún 8v rauðblesótt
Video-markaðurinn Hamraborg
2. Sigrún Gyða Sveinsdóttir og Huginn 7v moldóttur
Hestar og menn hestavöruverslun
3. Auður Ásta Hreiðarsdóttir og Gorbi 10v mósóttur
Ruby Tuesday – Týsdagur ehf
4. Valdís Björk Guðmundsdóttir og Litli-Rauður 13v
Klukkan Hamraborg
5. Stefán Hólm og Drangey 7v rauðskjótt
Litla Bílasalan Funahöfða 1
6. Helena R. Leifsdóttir og Þrymur 11v rauður
Umboðssalan Art ehf Fífulind 9
7. Kristín Hermannsdóttir og Mímir 16v brúnn
Kaffibarinn Bergstaðastræti 1
8. Helena R. Kristjánsdóttir og Sómi 14v bleikálóttur
ORA hf Vesturvör 2
Börn:
1. Sigrún Sigurðardóttir og Sörli 12v rauðblesóttur
EIMSKIP ehf
2. Guðný B. Guðmundsd. og Fjöður 17v jarpvindótt
Retis ehf Hlíðasmára 8
3. Bertha María Hreiðarsd og Skrúfa 6v jörp
Íslandsbanki Lækjargötu 12
4. Bára B. Kristjánsdóttir og Laski 13v rauðblesóttur Holræsahreinsunin ehf Melabraut 15
5. Guðlaug Rut Þórsdóttir og Vala 13v brún
Sjóvá – Almennar Keflavík
Unglingar:
1. Freyja Þorvaldardóttir og Fókus 7v brúnskjóttur Olíuverslun Íslands hf
2. Bjarnleifur S. Bjarnleifss. og Vængur 9v brúnskj. Skóverslun Kópavogs ehf Hamraborg 1
3. Gísli Rúnar Böðvarsson og Fluga 8v brún
B Benediktsson ehf útflutningsverslun
4. Sigurjón Bragi Geirsson og Glitnir 11v rauðbles. Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17
5. Hólmfríður Kristjánsd. og Hvítasunna 9v steingrá Hagsýsla ehf Skipholti 50b
Ungmenni:
1. Tryggvi Þór Tryggvason og Skrekkur 12v jarpur
F. Uhrenholt Seafood
2. Rúnar Freyr Rúnarsson og Perla 12v moldótt
Vélsmiðja Jóns Bergssonar
3. Reynir Ari Þórsson og Baldur 11v jarpur
Grétar Þórisson Plastviðgerðir
4. María Einarsdóttir og Venus 10v rauð
Stafgólf ehf Öldutúni 18
5. Elka Halldórsdóttir og Krapi 17v grár
K G Vökvaþjónusta ehf
Konur:
1. Berglind Rósa Guðmundsd. og Seiður 18v brúnn
Litla Kaffistofan Svínahrauni
2. Birgitta D. Kristinsdóttir og Sif 7v brún
Guðmundur Jónasson ehf
3. Maríanna Bjarnleifsd. og Sókrates 9v br.tvístj.
Raftíðni ehf Eyjaslóð 3
4. Þóra Ásgeirsdóttir og Kópur 13v móbrúnn
Gunnar Ingi Birgisson
5. Hulda G. Geirsdóttir og Mjölnir 7v bleikálóttur Helluskeifur ehf
Karlar:
1. Haraldur Gunnarsson og Geisli 11v rauðblesóttur
P O N Pjetur E Nikulásson ehf
2. Ríkharður Fl. Jensen og Jökull 8v hvítur
ECCO-búðin Laugavegi 38
3. Sigurjón Gylfason og Andri 8v vindóttur
Fótóval ehf Skipholti 50b
4. Guðmundur Skúlason og Þjótandi 8v jarpstjörn. American Style Nýbýlavegi 22
5. Bjarni Sigurðsson og Eldur 14v rauðstjörnóttur
Íspan ehf Smiðjuvegi 7
Heldri karlar og konur:
1. Magnús Matthíasson og Dynur 8v rauðblesóttur Arkitektar Skógarhlíð ehf
2. Jón Friðrik Sigurðsson og Amor 7v mósóttur
Landsbanki Íslands hf Austurstræti
3. Svanur Halldórsson og Gúndi 10v móálóttur
Kökuhornið Bæjarlind 1 – 3
4. Sæmundur Guðmundsson og Punktur 7v brúnn Teiknistofa Sturlu M Jónssonar
5. Kristján M. Hjartarson og Laski 13v rauðblesóttur Enduskst. Guðmundar Þorvarðarsonar
Glæsilegasta par mótsins:
Freyja Þorvaldardóttir og Fókus frá Feti.
Opið Íþróttamót 24.-25. Maí
POLLAR:
Þrígangur:
1. Rúna Halldórsdóttir, Gusti, og Barón frá Kópavogi
2. Helena Ríkey Leifsdóttir, Gusti, og Þrymur frá Skáney
3. Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Gusti, og Huginn frá Hörgshóli
4. Valdís B. Guðmundsd., Gusti, og Litli-Rauður frá Svignaskarði
Tölt:
1. Rúna Halldórsdóttir, Gusti, og Barón frá Kópavogi
2. Valdís B. Guðmundsdóttir, Gusti, og Litli-Rauður frá Svignaskarði
3. Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Gusti, og Huginn frá Hörgshóli
4. Helena Ríkey Leifsdóttir, Gusti, og Þrymur frá Skáney
5. Marín Rún Einarsdóttir, Gusti, og Tvistur
6. Halldór Logi Sigurðarson, Gusti, og Erpur frá Erpsstöðum
7. Stefán Hólm Guðnason, Gusti, og Draumey frá Tjarnarlandi
8. Anton Pétur Blöndal, Gusti, og Sokki frá Kjalarlandi
BÖRN:
Fjórgangur:
1. Edda Rún Guðmundsd., Fáki, og Fiðla frá Höfðabrekku 5,90/6,58
2. Ragnheiður Hallgrímsdóttir, Geysi, og Tomma frá