Gustur mynd 1

Á döfinni

Meira...


Reiðhöll

Meira...


Fréttir

Meira...



Teljari: 666366

Lög og Reglugerðir


Lög

Hestamannafélagið Gustur í Kópavogi.

I. Kafli.
Heiti og markmið félagsins.

1. gr.

Félagið heitir Hestamannafélagið Gustur. Heimili þess og varnarþing er í Kópavogi. Félagið er aðili að U.M.S.K., L.H. og Í.S.Í. og er háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.

2. gr.

Markmið félagsins er að efla áhuga manna á hestum, stuðla að góðri meðferð þeirra, vinna að framgangi hestaíþrótta og gæta hagsmuna félagsmanna.

      Í samræmi við ofangreind markmið hyggst félagið vinna að eftirfarandi verkefnum:

   1. Að útvega land undir hesthús félagsmanna.
   2. Að byggja upp nauðsynleg mannvirki vegna starfsemi félagsins, svo sem velli og félagshús.
   3. Að gefa kost á sem víðtækastri fræðslu um hesta, notkun þeirra og umhirðu, m.a. með fræðsluerindum, reiðnámskeiðum og rekstri reiðskóla.
   4. Að skipuleggja ferðalög á hestum á vegum félagsins og kynna reiðleiðir.
   5. Að greiða fyrir útvegun sumarbeitilands.
   6. Að beita sér fyrir því að reiðvegir verði lagðir.
   7. Að koma á framfæri sjónarmiðum félagsmanna í málum sem varða sameiginlega hagsmuni þeirra svo sem skipulags-, landnýtingar- og umferðarmálum m.a. gagnvart ríkisvaldi og sveitarfélögum.
   8. Að halda góðhestakeppnir, íþróttamót, kappreiðar og sýningar ásamt því að leggja reiðhestakynbótum lið svo sem kostur er.

II. Kafli.
Félagsaðild, félagsgjald.

3. gr.

Félagar geta allir orðið sem þess óska og hafa áhuga á hestum og eru reiðubúnir til þess að hlíta lögum og reglum félagsins. Ekki eru aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður kynnu að hamla. Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn þess sem tekur afstöðu til hennar. Í umsókn skal greina nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda. Umsókn skal borin undir félagsfund til samþykktar.

4. gr.

Aðalfundur ákveður árlegt félagsgjald. Unglingar 16 ára og yngri greiða lægra gjald eftir ákvörðun aðalfundar. Félagsgjald skal greiða fyrir 1. maí ár hvert. Félagar 70 ára og eldri og 12 ára og yngri greiða ekki félagsgjald.

5. gr.

Félagar sem skulda félagsgjöld frá fyrra ári hafa eigi atkvæðisrétt á fundum félagsins. Þeim er óheimilt að koma fram fyrir það út á við. Þeim sem ekki greiða félagsgjöld tvö ár í röð má víkja úr félaginu. Brjóti félagi alvarlega af sér gegn lögum og reglum félagsins, er stjórn þess heimilt að víkja honum úr því. Félaga sem vikið er úr félaginu er heimilt að áfrýja þeirri ákvörðun til aðalfundar.

III. Kafli. Stjórn, aðalfundur, fjármál.
6. gr.

Stjórn félagsins skipa fimm menn: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi, sem kosnir eru skriflegri kosningu á aðalfundi félagsins. Formann ber að kjósa einan sér til tveggja ára. Árlega skal kjósa tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Einnig skal kjósa tvo varamenn til eins árs. Verði stjórnarmaður kosinn formaður skal kjósa annan í hans stað til eins árs. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Á aðalfundi skal kjósa til eins árs í senn tvo skoðunarmenn og tvo til vara til þess að yfirfara reikninga félagsins.
7. gr.

Formaður er framkvæmdastjóri félagsins. Hann boðar til stjórnarfunda svo oft sem þurfa þykir. Skylt er honum að boða fund er þrír stjórnarmanna óska þess. Stjórn félagsins getur þó ákveðið að annar stjórnarmaður eða starfsmaður félagsins gegni starfi framkvæmdastjóra. Ritari gegnir ritarastörfum og heldur gerðabók. Gjaldkeri færir bókhald fyrir félagið, innheimtir félagsgjöld og greiðir reikninga í samræmi við ákvörðun stjórnar. Við innheimtu félagsgjalda er gjaldkera heimilt að ráða sér til aðstoðar aðra félagsmenn, enda beri hann ábyrgð á því. Að öðru leyti ákveður stjórn hverju sinni um skiptingu verkefna milli stjórnarmanna.

8. gr.

Stjórn félagsins ber að varðveita öll skjöl og gögn er geyma heimildir um störf félagsins, svo sem félagaskrá, bókhaldsgögn og bréf. Einnig ber að halda skrá yfir öll hross sem sýnd eru á mótum félagsins eða keppa á kappreiðum þess.

9. gr.

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í október ár hvert. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Fyrir aðalfund skal einnig leggja 8 mánaða reikningsskil. Boða skal aðalfund skriflega og skal póstleggja fundarboð með viku fyrirvara eða með auglýsingu í útvarpi og dagblöðum með þriggja daga fyrirvara.

      Störf aðalfundar eru þessi:

   1. Formaður leggur fram skýrslu stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
   2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða af skoðunarmönnum félagsins. Gjaldkeri leggur einnig fram 8 mánaða reikningsskil yfirstandandi rekstrarárs. Stefnt skal að því að rekstraráætlun komandi rekstrarárs liggi frammi á fundinum.
   3. Lagabreytingar sé þess óskað, skv. 20. gr.
   4. Kosning aðalstjórnar, varastjórnar og skoðenda, skv. 6. gr.
   5. Kosning nefnda skv. 14. gr. og fulltrúa félagsins á landsþing L.H. og héraðsþing skv. 15. gr.
   6. Önnur mál sem félagið varðar.

10. gr.

Auk aðalfundar er stjórn félagsins heimilt að boða til almennra félagsfunda, svo oft sem þurfa þykir. Skylt er að halda félagsfund ef 20 félagsmenn óska þess skriflega. Boða skal almenna félagsfundi með sama hætti og segir í 9. gr.
11. gr.

Formaður setur fundi og stýrir þeim eða felur kjörnum fundarstjóra fundarstjórn. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á fundum félagsins nema annað sé tekið fram í lögum þessum. Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg ef þess er óskað og ef meirihluti fundar samþykkir.
12. gr.

Reikningsár félagsins er almanaksárið.
13. gr.

Stjórn félagsins er þá aðeins heimilt að kaupa eða selja fasteignir, byggja hús eða taka ákvarðanir, sem hafa í för með sér verulegar fjárskuldbindingar, að fyrir liggi samþykki aðalfundar eða félagsfundar.
IV. Kafli.
Um nefndir og starfssvið þeirra.

14. gr.

      Á aðalfundi skal kjósa eftirtaldar starfsnefndir sem vinni að afmörkuðum málum í samráði við stjórn félagsins:

   1. Fræðslunefnd.
      Í fræðslunefnd skal kjósa 3 til 5 menn og skal starfsár hennar að jafnaði hefjast 1. október þess árs, sem hún er kjörin. Nefndin skal starfa í samráði við stjórn félagsins, verksvið sbr. einnig ákvæði 3. töluliðs 2. gr.

   2. Mótanefnd.
      Í mótanefnd skal kjósa 5 til 9 menn. Skal hún undirbúa og sjá um gæðingakeppni. Kappreiðar skal nefndin halda ef ástæða þykir til, að höfðu samráði við stjórn félagsins. Stjórn félagsins ákveður hvenær gæðingakeppni og kappreiðar félagsins skuli fara fram. Reglur um gæðingakeppni og kappreiðar skulu vera samkvæmt reglum L.H. Heimilt skal þó að halda kappreiðar með óformlegri hætti en reglur L.H. segja til um. Á innanfélagsmóti skulu hestar sem þátt taka í gæðingakeppni vera í eigu félagsmanna. Heimilt er stjórn að ákveða gjald fyrir þátttakendur á kappreiðum og gæðingakeppni.

   3. Íþróttanefnd.
      Í íþróttanefnd skal kjósa 5 til 9 menn og skal starfsár hennar að jafnaði hefjast 1. október þess árs sem hún er kjörin. Verksvið íþróttanefndar skal vera að standa fyrir íþróttamótum, vetrarleikum og sýningum. Íþróttanefnd skal sjá um skráningu keppenda félagsins á Íslandsmótum, bikarmótum og öðrum mótum í hestaíþróttum eftir því sem þurfa þykir og sér um að viðeigandi skýrslum sé skilað til L.H. í samráði við stjórn Gusts. Íþróttanefnd skal starfa í samráði við stjórn Gusts að öðru leyti.

   4. Firmakeppnisnefnd.
      Í firmakeppnisnefnd skal kjósa 5 til 9 menn. Skal hún annast undirbúning og framkvæmd firmakeppni félagsins.

   5. Rekstrarnefnd Reiðhallar Gusts.
      Í rekstrarnefnd skal kjósa 3 til 5 menn. Rekstrarnefnd hefur yfirumsjón með rekstri reiðhallar félagsins í samráði við stjórn félagsins. Rekstrarnefnd hefur eftirlit með eigum félagsins og heldur skrá yfir lausamuni þess.

   6. Fóðureftirlitsnefnd.
      Í fóðureftirlitsnefnd skal kjósa 3 menn. Skulu þeir fylgjast með fóðrun og umhirðu hrossa í hesthúsum á félagssvæðinu. Skulu þeir ganga í hvert hús eigi sjaldnar en tvisvar á vetri. Nú telja fóðureftirlitsmenn fóðrun eða umhirðu hrossa ekki nægilega. Skulu þeir þá aðvara þá sem bera ábyrgð á því og gefa viðkomandi kost á að bæta úr innan tiltekins tíma. Ef eigi er úr bætt að mati eftirlitsmanna skulu þeir þá gera stjórn félagsins aðvart án tafar til frekari aðgerða í málinu.

   7. Umhverfis- og reiðveganefnd.
      Í umhverfis- og reiðveganefnd skal kjósa 3 til 5 menn. Verksvið nefndarinnar er eftirlit með að reglugerð um umgengni, frágang gerða og hesthúsa sé haldin. Nefndin stendur fyrir hreinsunardegi á félagssvæðinu a.m.k. einu sinni á ári. Nefndin hefur einnig eftirlit með reiðgötum við félagssvæðið, skipulagi reiðleiða og starfar að öðru leyti í nánu samráði við stjórn félagsins.

   8. Vallarnefnd.
      Í vallarnefnd skal kjósa 3 til 5 menn. Verksvið nefndarinnar er að hafa eftirlit með vallarsvæði félagsins og æfingagerðum. Þá skal nefndin í samstarfi við íþrótta- og mótanefnd sjá til þess að vallarsvæði félagsins sé ávallt í sem bestu ástandi. Að öðru leyti starfar nefndin í samráði við stjórn félagsins.

   9. Skemmtinefnd.
      Í skemmtinefnd skal kjósa 3 til 5 menn. Skal hún undirbúa og annast framkvæmd árshátíðar og annarra skemmtana innan félagsins.

  10. Ármenn.
      Kjósa skal 3 til 5 Ármenn. Skulu þeir sjá um að skipuleggja ferðir á hestum á vegum félagsins.

  11. Æskulýðsnefnd.
      Í æskulýðsnefnd skal kjósa 3 til 7 fulltrúa. Hlutverk nefndarinnar er að hafa yfirumsjón með barna-, unglinga- og ungmennastarfi hjá félaginu.

  12. Útgáfu- og kynningarnefnd.
      Í útgáfu- og kynningarnefnd skal kjósa 3 til 5 fulltrúa. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um útgáfu fréttabréfs félagsins. Einnig annast nefndin kynningu á félaginu og fréttaflutning til viðkomandi fjölmiðla um starfsemi félagsins. Skal nefndin starfa í nánu samráði við stjórn félagsins varðandi kynningarmál þess.

  13. Laganefnd.
      Í laganefnd skal kjósa 2 félagsmenn. Laganefnd skal undirbúa og leggja fyrir stjórn og aðalfund tillögur til lagabreytinga gerist þess þörf. Félagsmenn geta komið ábendingum og tillögum um lagabreytingar til laganefndar. Skal slíkum ábendingum og/eða tillögum komið til nefndarinnar eigi síðar en 31. desember eigi þær að verða lagðar fyrir næsta aðalfund sem haldin er í febrúar ár hvert.

  14. Aðrar nefndir.
      Auk framantalinna nefnda getur aðalfundur ákveðið hverju sinni að kjósa nefndir til þess að vinna að ákveðnum verkefnum innan félagsins. Hverfi fulltrúi úr nefnd eða ekki er fullskipað í nefnd á aðalfundi, er stjórn félagsins heimilt að tilnefna fulltrúa í viðkomandi nefnd. Þá getur stjórn félagsins hvenær sem þurfa þykir skipað nefndir sem vinni að ákveðnum verkefnum fyrir félagið. Nefndir sem hafa fjármuni undir höndum skulu gera skil til stjórnar strax að loknum störfum.

V. Kafli.
Um aðild að U.M.S.K., L.H. og Í.S.Í.

15. gr.
Val fulltrúa á héraðsþing U.M.S.K. miðast við félagsmenn skv. félagatali s.l. starfsárs. Fjöldi fulltrúa á landsþing L.H. fer eftir reglum L.H. þar um. Formaður félagsins er sjálfkjörin fulltrúi félagsins á héraðsþing U.M.S.K. og landsþing L.H. en aðrir fulltrúar skulu kosnir með skriflegri kosningu á aðalfundi. Kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþings og ársþinga sambandsaðila Í.S.Í. hafa þeir félagsmenn sem náð hafa 16 ára aldri sbr. 7. gr. laga Í.S.Í.

VI. Kafli.
Um leiguland félagsins o.fl.

16. gr.

Félagið tekur á leigu land hjá Kópavogsbæ fyrir starfsemi sína og endurleigir til félaga sinna lóðir undir hesthúsbyggingu samkvæmt samningi þar um. Stjórn félagsins annast úthlutun lóða. Heimilt er að leggja gjald á óbyggðar lóðir við úthlutun þeirra samkvæmt ákvörðun stjórnar.

17. gr.

Lóðarhafar (hesthúaseigendur) skulu greiða til félagsins þjónustugjald. Gjaldið miðast við tiltekna fjárhæð á fermetra í hesthúsi. Ákvörðun um gjaldið skal tekin á aðalfundi fyrir hvert ár í senn. Gjalddagi og eindagi þjónustugjalds er hinn sami og félagsgjalda.

18. gr.

Heimilt er að leggja á sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við sérstök verkefni sem varða hagsmuni félagsins. Ákvörðun um slíka gjaldtöku skal háð samþykki félagsfundar.

19. gr.

Hesthúsaeigendum á félagssvæði Gusts er skylt að vera félagar í Gusti með þeim réttindum og skyldum er því fylgja.

VII. Kafli.
Um lagabreytingar.

20. gr.

Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi. Þarf 2/3 hluta atkvæða til þess að breyting nái fram að ganga. Í aðalfundarboði skal þess sérstaklega getið að tillaga til lagabreytinga verði lögð fram og efni hennar lýst. Lagabreytingar, sem félagar kunna að vilja bera fram skulu berast stjórn og/eða laganefnd félagsins fyrir 31. desember.
VIII. Kafli.
Um félagsslit.

21. gr.

Ef slíta á félaginu verður það einungis gert á fundi, þar sem mættir eru minnst þrír fjórðu skráðra félaga enda greiði tveir þriðju fundarmanna því atkvæði. Ef ekki mætir tilskilinn hluti félagsmanna má boða til nýs fundar og verður þá félaginu slitið á löglegan hátt, ef tveir þriðju hlutar fundarmanna greiða því atkvæði. Verði félaginu slitið skulu eignir þess afhentar Kópavogskaupstað til vörslu, þar til nýtt félag með svipuðum markmiðum og Hestamannafélagið Gustur hafði, verður stofnað í Kópavogi. Skulu eignirnar þá afhendast því félagi til eignar, enda hafi bæjarráð Kópavogs kannað vilja og getu hins nýja félags til að takast á hendur slíkan rekstur.

22. gr.

Lög þessi eru með þeim breytingum sem samþykktar voru á aðalfundi 1998.

Útgáfa í mars 2003