| Hið árlega opna töltmót unga fólksins, ÁG mótið í Gusti, fór fram á sumardaginn fyrsta í reiðhöllinni í Glaðheimum. Skráning var mjög góð, mest í unglingaflokki og var keppt í A- og B- úrslitum í þeim flokki. Veglegir verðlaunagripir voru í boði og var keppninn spennandi og skemmtileg. Á sama tíma var kaffihlaðborð á efri hæðinni á vegum Kvennadeildar Gusts og þar gátu menn setið og drukkið kaffi og horft á keppnina á breiðtjaldi eða farið niður í salinn og fylgst með að kaffi loknu. Margir nýttu tækifærið og komu í Kópavoginn til að fá sér góðgæti og horfa á framtíðarknapa þreyta kappi og var dagurinn hinn ánægjulegasti og vel heppnaður. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: Barnaflokkur: 1. Berta María Waagfjörð, Gusti, og Pjakkur frá Garðabæ 5,43/6,17 2. Skúli Þór Jóhannsson, Sörla, og Gyðja frá Hafnarfirði 5,80/6,11 3. Ásta Björnsdóttir, Sörla, og Ísak frá Ytri-Bægisá 5,17/5,44 4. Flosi Ólafsson, Faxa, og Skolli frá Akureyri 4.93/5,39 5. Rúna Halldórsdóttir, Gusti, og Barón frá Kópavogi 4,30/4,72 Unglingaflokkur: 1. Camilla Petra Sigurðardóttir, Mána, og Prinsessa frá Stóra-Hofi 5,53/6,44 2. Sandra Líf Þórðardóttir, Sörla, og Hrókur frá Enni 5,73/6,22 3. Erna Guðrún Björnsdóttir, Andvara, og Snót frá Akureyri 5,10/5,94/6,17 (Erna sigraði B-úrslit) 4. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Gusti, og Roði frá Ármóti 5,67/6,11 5. Viktoría Sigurðardóttir, Mána, og Valsi frá Skarði 5,60/5,94 6. Freyja Þorvaldardóttir, Gusti, og Skálm frá Úlfsstöðum 5,47/5,83 7. Bára Bryndís Kristjánsd., Gusti, og Stefnir frá Hofi I 4,80/5,61 8. Margrét Lilja Margeirsd., Mána, og Dimma frá Oddsstöðum 4,93/5,44 9. Sigurborg Hanna Sigurðard., Faxa, og Rökkvi frá Oddsstöðum 5,33/5,44 10. Arna Albertsdóttir, Geysi, og Biskup frá Hrafntóftum 4,47/5,33 Ungmennaflokkur: 1. Helga Björk Helgadóttir, Geysi, og Eydís frá Djúpadal 6,67/7,28 2. Elva Björk Margeirsdóttir, Mána, og Hljómur frá Kálfholti 6,27/6,83 3. Perla Dögg Þórðardóttir, Sörla, og Tindur frá Enni 6,10/6,33 4. Árni Björn Jónsson, Herði, og Gnótt frá Skollagróf 5,90/6,11 5. Sigurjón Bragi Geirsson, Gusti, og Jarl frá Guðrúnarstöðum 5,57/6,0
|